27.04.2009 21:21:15 / loevly_me
Verkefni og glæpasmásögur
Jæja, ég er allavega búin að druslast til að gera sumt sem ég ætlaði að gera í dag. Líka nokkra hluti sem ég var ekki búin að skrifa á listann yfir hluti til að gera í dag en hefði átt að vera búin að gera. En sumt er því miður ennþá ógert.
Að skrifa blogg var ótrúlegt en satt ekki á listanum. Hinsvegar þarf ég að pæla soldið og þar sem mér finnst gott að pæla og skrifa verðið þið fyrir barðinu á þessu.
Málið er að glæpasagnakeppni Mannlífs, Gaddakylfan, stendur nú fyrir dyrum. Í fyrra tókst mér að fá sögu birta í bókinni sem gefin var út að keppninni lokinni og auðvitað væri ég alveg til í að láta kitla egóið á þennan hátt aftur.
Glæpasmásagnaformið vefst samt soldið fyrir mér... reyndar fleira líka. Smásagnaformið er náttúrulega soldið snúið. Það þarf að hafa einhvern ákveðinn vinkil. Það er í raun ekki verið að segja sögu heldur að lýsa einhverju ef svo má segja. Sjaldnast er í smásögu sögð samfelld atburðarrás frá upphafi til enda... Oftast nær þarf einhverjar fleiri útskýringar. En hugsanlega væri það hægt samt.
En ef glæpasmásögur eru bara brot af einhverjum stærri atburrðarrásum á þá að setja saman heila bók með brotakenndum lýsingum á óskyldum og mismunandi glæpum? Lnagar einhvern að lesa þannig bók?
Svo er náttúrulega vandi að finna glæp. Þarf endilega alltaf að skrifa um morð? Mér dettur bara ekkert frumlegra í hug. Æi ég veit ekki. Þetta eru allt of miklar pælingar.