Á hverju þessara heillandi viðfangsefna í titlinum á maður nú eiginlega að byrja á?
Byrjum á hamingju í sjónvarpsþáttum. Ég sá brot af Bráðavaktinni áðan. Ein af ástæðunum fyrir því að ég hætti að nenna að horfa á þetta, en hún var eitt síðasta vígið hjá mér sem féll, var að það er svo rosalega mikið drama og það fær aldrei neinn að vera hamingjusamur... alls ekki til lengdar. Ég er ennþá að vona það að lífið sé ekki alltaf svona ömurlegt hjá venjulegu fólki. Ég meina, það svífur nú sennilega ekki árum saman um á rósrauðu skýi í sjöunda himni. Ég geri mér grein fyrir því. En ef maður sér alltaf eintóma óhamingju eða bara stuttar stolnar stundir hamingju í sjónvarpinu, endar það ekki með því að maður gefur upp alla von um að lífið geti verið gott?
Ástæðan fyrir því að ég festist í þessum þætti var að í upprifjuninni í byrjuninni kom fram að sæti læknirinn Ray, sem Shane West (slef!) leikur, varð fyrir stærðarinnar trukki. Svo var í þættinum miðjum rosalega angistarfull sena þar sem Neela var að koma á sjúkrahúsið að hitta hann. Fyrst sást bara vangasvipurinn á honum sem var alfleiðraður og ég vissi um leið. Það var búið að taka eitthvað af honum, sennilega lappirnar. Og viti menn. Mitt velþjálfaða sjötta skilningarvit á plott í bandarískum sjónvarpsþáttum brást mér ekki og ég hitti naglann á höfuðið. Þetta skilningarvit mitt sagði mér líka að Ray og Neela höfðu verið við það að ná saman þegar þetta gerðist. Þarna varð sem sagt ekki einu sinni stutt hamingja. Ég ætla ekki að horfa meira á Bráðavaktina í bili.
En þetta vakti mig til umhugsunar um annað. Sjötta sjónvarpsskilningarvitið segir mér líka að ekki sé ólíklegt að Neela og Ray byrji saman þrátt fyrir þetta. Þetta veldur mér svolitlum áhyggjum vegna þess að kannski er verið að búa til einhverja steríótýpu af ungum snjöllum og samviskusömum konum sem einskonar píslarvottum, að þær leiti í þjáningu.
Ekki skilja mig þannig að ég sé á móti því að Neela byrji með honum fyrst hann er fótalaus. Langt því frá. Áhyggjuefni mitt er hinsvegar frekar að þetta verður óhjákvæmilega óskaplega erfitt og tregafullt samband, í það minnsta í fyrstu. Og hver er saga Neelu. Jú hún átti skammvinnan hamingjutíma með eiginmanninum áður en hann var sendur í herþjónustu í Írak þar sem hann síðan lét lífið, og svo hætti ég að horfa þegar hún fór að slá sér upp með læknanemanum sem bjó með ekkju besta vinar síns og einhverjar flækjur urðu í kringum.
Ef Neela væri nú eina dæmið, væri kannski ekki þess vert að fara að hafa áhyggjur. En við þetta dettur mér líka hin unga, samviskusama, góðhjartaða og snjalla dr. Cameron í House. Hún giftist ung æskuástinni, sem hún vissi að myndi brátt deyja úr krabbameini og var svo um tíma áhugasöm um að taka dr. House, yfirmann sinn, að sér en sá andlegi farangur sem hann ber kæmist ekki einu sinni fyrir inni í geymslunni minni. En síðast þegar ég rak augun í House virtust hún og dr. Chase, sem er nær henni í aldri, myndarlegri og tilfinningalegri heilbrigðari (eða allavega virðist það
en House, vera farin að slá sér upp. Kannski er því ekki öll von úti enn fyrir unga metnaðarfulla kvenlækna í sjónvarpi.
Næsta efni á dagskrá: Sálfræðiaðstoðin. Hún ætti að vera stutt og laggóð. Í fréttunum áðan var sagt að fólk væri í auknu mæli að panta sér tíma hjá sálfræðingi núna fyrir jólin af því að það höndlaði ekki stressið og álagið. Enn og aftur langar mig að öskra: Ef þú þarft að fá 10 tíma hjá sálfræðingi í jólagjöf til að ná þér eftir jólin og jólastressið þá er eitthvað að hjá þér í jólaundirbúningnum! En þetta er nú samt svolítið asnalegt vegna þess að ef maður þarf þessa tíma... þá virkilega þarf maður þá.
Skildi þetta einhver?
Þá er það skírlífið... eða öllu heldur skort á því. Nýjustu fréttir af hinni stórmerkilegu Spears fjölskyldu eru þær að hin 16 ára Jamie Lynn sé ófrísk. Í kjölfarið ráðlagði hún krökkum að bíða með að stunda kynlíf fyrr en eftir hjónaband.
Ég held að það ætti að upplýsa þessa fjölskyldu um það að þótt skírlífi fram að hjónabandi sé vissulega góð getnaðarvörn séu til aðrar leiðir líka, sem hamla því að getnaður eigi sér stað við kynmök. Reynar lét Jamie Lynn það fylgja tilkynningunni að hún gæti ekki dæmt neinn vegna þeirra aðstæðna sem hún væri búin að koma sér í.
Gott og vel. Ekki sofa hjá fyrir hjónaband, ef þú vilt það: Fínt. En ef þú vilt sofa hjá fyrr: Líka í lagi en bara gera það á ábyrgan hátt. Ég skil eiginlega ekki að nokkrum manni skuli lengur detta það í hug að segja krökkum að þeir megi ekki sofa hjá fyrr en eftir giftingu: punktur. Það er nefnilega alvitað mál (ég sá þetta einu sinni hjá doktor Phil) að til eru krakkar sem fara eftir þessu en töluverður hluti þeirra sem fer bara eftir þessu í þrengstu merkingu. Jafnvel þótt börnin og unglingarnir láti það vera að hafa leggangasamfarir eru þau sum hver langt frá því að vera kynferðislega óvirk.
Ég er alveg viss um það að ef Britney svaf aldrei hjá Justin meðan þau voru saman (og mér er nákvæmlega sama hvort þau gerðu það eða ekki) lágu þau ekki bara saman uppi rúmi hjá sér, fóru með bænirnar og fóru svo að sofa.
Ég er bara að segja að bandarískir foreldrar þurfa bara einhvern daginn að vakna upp við það að það að banna börnum sínum að sofa hjá fyrir giftingu dugi til að koma þeim líkamlega og andlega heilbrigðum í gegnum kynþroskaskeiðið eru löngu úrelt vísindi. Ég held í vonina um að þetta sé líffræðilega mögulegt, en stundum kemur upp í mér mikil bjartsýnismanneskja... eins og þegar ég bjóst við að vera kannski 15 mín að skrifa þetta blogg.... ég er að verða komin í 40 og á eftir að setja hana á netið.