Ég horfði á sjónvarpsfréttirnar áðan.
Ég var nú alveg hlessa á því að hann Edward H. Huijbens skuli
standa fyrir þessu mannréttindabroti, sem ég vil kalla, sem á að
fara að fremja á Akureyri. Ef einhverjir geta haldið því fram að
það að skjóta upp flugeldum um áramót séu mannréttindi get ég
alveg eins haldið fram að það séu mannréttindi að fá að tjalda
um verslunarmannahelgina á tjaldsvæði á Akureyri alveg sama
hversu gamall, eða í þessu til felli, ungur maður er, og vil ég
trúa því að ég hafi meira fyrir mér en flugeldafólkið í þessari
staðhæfingu minni. Ég er samt mjög lögfróð manneskja.
Mér finnst þetta eiginlega fyrir neðan allar hellur. Að banna
18-23 ára fólki að tjalda! Af hverju? AF því að það er líklegt til
að vera með læti? Einhvern veginn grunar mig að Zorró hafi verið
með meiri læti en ég á tjaldsvæðinu á Borgarfirði á Álfaborgarséns
um árið. Mér finnst þetta bara fáránlegt. Þetta er bara eins og með
mótorhjólamennina. Meirihlutinn er ágætur en auðvitað eru alltaf
einhver skemmd epli inn á milli. Ég á bara ekki orð til lýsa
hneykslun minni þessa stundina.
Ég las líka inni á mbl.is í dag að ekki hefði heyrst mikið jákvætt
um Strætó undanfarna mánuði í fréttum (mikið virðist ég orðin
fréttaþyrst). Sé ég mig knúna til að taka upp hanskann fyrir Strætó
og skrifa smá sem ekki allt er slæmt.
Í fyrsta lagi er það að nýja leiðakerfið virkar bara helvíti vel
fyrir mig. Ég get ekki kvartað. Ég er ekki nema 45 mínútur í
vinnuna núna og ef ég flýti mér get ég verið 40 mínútur heim. Þarf
hvergi að bíða í meira en 5 mínútur og skipti þó tvisvar um vagn.
Þarf aldrei að bíða lengur en 20 mínútur eftir einhverjum vagni
þegar ég er búin í vinnu og hverfisvagnarnir hafa alltaf nema einu
sinni í sumar beðið eftir S1 sem er mikil framför frá því í
fyrrasumar.
Lengi má gott bæta. Ég hef samt mínar efasemdir um það að setja
upp skilti með nöfnum stoppistöðva og leyfa kaffidrykkju í vögnuum
sé það sem brýnast liggur á. Að nefna stoppistöðvarnar er svosem
ágætt framtak en gagnast afar takmarkað nema nöfnin komi líka inn á
áætlanir og helst inn í vagnanna þannig að sjáist hvað sé næsta
stoppistöð. Ég held að það sé ekki að fara að gerast.
Og kaffadrykkja? Með því aksturslagi sem tíðkast hjá sumum
bílstjórnunum gæti þetta orðið hættulegt. Auk þess sem þetta mun
bara auka á rusl í vögnunum og sóðaskap. Ég er ekki hlynnt þessu.
Þetta er það sem ég myndi leggja til að yrði gert.
Ø
Lækka fargjöldin niður í einhverjar eðlilegar
fjárhæðir. T.d. 200 kr. fyrir fullorðna og 50 kr. fyrir börn. Og
láta bílstjórana hafa nokkra hundrað- og fimmtíukalla til að gefa
til baka. Ég meina 280 kr. er fáranlega hátt og heimskulegt að hafa
þetta ekki á sléttu hundraði eða hálfu.
Ø
Fjölga ferðum. En það kemur sennilegast með
haustinu og skólunum (eða það ætla ég rétt að vona allavega á
álagstímum).
Ø
Skikka Teit Jónasson og Hagvagna sem reka
Strætisvagnana í Kópavogi og Hafnarfirði til þessa að lappa upp á
bílaflotann og leggja þeim bílum sem hanga saman á einangrunarteipi
og sprengja hljóðhimnurnar í þeim sem í þeim sitja og verða fyrir
því óláni að vera nálægt þegar þeir keyra framhjá. Strætó í
Reykjavík er algjör lúxus. Ekki nóg með að fæturnir komist fyrir án
vandræða heldur líða bílarnir nánast hljóðlaust um göturnar, vaggja
kannski örlítið mjúklega og sætin eru mjúk.
Ø
Setja upp system þar sem hægt er að sjá á skjá
fremst í bílnum hvaða stoppistöð er næst – eins og í lestum í
útlöndum!
Ø
Gera atvinnurekendunum kleift að útvega
starfsmönnum sínum strætókort og draga kostnaðinn frá skatti (eins
og bílastyrk!).
Ø
Bjóða upp á dagskort fyrir
ferðamenn.
Ø
Hafa frítt í hverfisvagna í Hafnarfirði
(allavega)
Ø
Hafa frítt í strætó!
Ég
hef lokið máli mínu.