Lára tjáir sig
13.2.2008 05:14:37 / loevly_me

Um mig

Þetta er spurningalisti sem ég fékk einhvern tíman í tölvupósti. Var nógu ófrumleg til að láta þær upplýsingar sem fram koma í honum duga sem persónulýsingu á mér hérna.
Ákvað að tími væri komin á uppfærslu, í dag 17. október 2009.

1. Hvenær vaknaðir þú í morgun?
    Uhmm þótt það sé laugardagur og ég hafi farið frekar seint að sofa í gær var ég fyrst vöknuð um 7.

2. Demantar eða perlur?
    Perlur líklega.

3. Hver er síðasta mynd sem þú fórst á í bíó?
    Inglorious Basterds. Ég faldi mig ekki á bak við Janna.

4. Uppáhalds sjónvarpsþáttur?
    Hmmm erfitt þar sem ég er svo gott sem hætt að horfa á sjónvarp. Þessa dagana, til að vera fullkomlega hreinskilin er það Anítu     Blake sjónvarpsþátturinn sem ég er að búa til höfðinu á mér.

5. Hvað borðaðir þú í morgunmat?
    Er hrædd um að ég sé núna eftir margra ára samfylgd að fá ógeð á Cherriosi. Það er slæmt. Í morgun borðaði ég appelsínu.

6. Hvert er miðnafn þitt?
    Guðlaug

7. Uppáhalds matur?
    Finnst lasagne með fullt af dóti alltaf mjög gott.

8. hvaða matur líkar þér ekki?
    Hjörtu, lifur, slátur, svið... held það sé eitthvað mynstur í þessu.

9. Hver er uppáhalds flögu-bragðtegundin þín?
    Skrítnasta tegund sem mér finnst góð er ostur og laukur frá Lays.

10. Hver er uppáhalds geisladiskurinn þinn í augnablikinu?
      Líklega Twilight scorið. Það er æði.

11. Hvernig bíl keyrirðu.
      Hann er stór og gulur og ég þarf ekki að keyra hann sjálf.

12. Uppáhalds samloka?
      Á fólk yfirleitt uppáhalds samloku?

13. Hvaða eiginleika fyrirlítirðu í fólki?
      Óheiðarleika, illkvittni, að stela bjór og virðingarleysi fyrir hlutum og reglum og vinnutíma.

14. Hvað elskarðu mest?
      Sjálfa mig líklega.

15. Uppáhalds flík?
      Ógeðslega flotti árshátíðarkjóllinn sem ég keypti á 70% afslætti í Debenhams án þess að vita hvort ég myndi nokkurn tíman     fara í en hef notað hann einu sinni. 

16. Ef þú gætir farið hvert sem er í frí, hvert myndirðu fara?
      Akkúrat núna langar mig soldið í heimsókn til afa míns í Hamborg.

17. Hvernig er baðherbergið þitt á litinn?
      Ég held að það hafi verið rjúpuhvíti liturinn sem ég keypti. Mætti samt alveg kalla hvítt.

18. Uppáhalds fatamerki?
      Finnst margt frá Skunkfunk ansi flott en ég reyndar ekkert frá því merki.

19. Hvar myndir þú vilja setjast í helgan stein?
      Heima hjá mér vonandi.

20. Hver er eftirminnilegasti afmælisdagurinn þinn?
      Enginn sérstakur held ég. En ein besta afmælisgjöf sem ég hef fengið var miði á jólatónleika sínfóníuhljómsveitarinnar (2006)       daginn eftir afmælið.

21. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á?
      Frjálsar þegar Sigurbjörn Árni er að lýsa. Finnst líka sund skemmtilegt og formúlan stundum.

22. Hvenær átt þú afmæli?
      16. desember.

23. Ertu morgun-hani eða nátt-ugla?
      Er nú sennilega enginn morgun-hani. Kannski svona síðkvölds fugl.

24. Hvaða skóstærð notarðu?
      38-40.

25. Gæludýr?
      Veit ekki alveg hversu lengi pottablómið á eftir að tóra.

26. Nýjar fréttir sem þú vilt deila?
      Ööhm. Engar í dag.

27. Hvernig hefurðu það í dag?
      Fínt. Nenni bara ekki að reyna að finna mér eitthvað að borða.

28. Hvað langaði þig að verða þegar þú yrðir stór?
      Hef aldrei átt svona ákveðna langlífa drauma. Einu sinni skrifaði ég í ensku verkefnabók að mig langaði til að verða
      formúlu 1 bíla hönnuður. Mig dreymir líka ennþá um frægð og frama. Þessa dagana oftast sem handritshöfundur eða     rithöfundur.

29. Uppáhalds nammi?
      Kit Kat Peanut Butter og Picknic súkkulaði. Pipp af íslensku.

30. Uppáhalds blóm?
      Detta nokkrar tegundir í hug. Holtasóleyjar, dýragras, blágresi.

31. Hvaða dagsetningar hlakkar þú til?
      24. desember. Það sárlega vantar frídaga á dagatalið á haustin.

32. Hvert hefurðu farið lengst að heiman?
      Ætli Riverton, Manitoba í Kanada sé ekki lengst í burtu.

33. Uppáhalds tímarit?
      Bændablaðið?

34. Lítill hlutur sem þú virkilega nýtur?
      Hrós. Það er reyndar enginn lítill hlutur.